Knattspyrnufélagið Valur

Síðasti dagurinn í knattspyrnuskóla Vals og Sumarbúðum í Borg

Í dag er síðasti dagur í námskeiðunum okkar Sumarbúðir í Borg og Knattspyrnuskólanum á þessu sumri. Námskeiðin hafa gengið einstaklega vel og talsverð fjölgun frá síðustu árum. Krakkarnir í Sumarbúðunum hafa haft ýmislegt fyrir stafni verið í íþróttum og leikjum og farið í ferðir m.a. fengu þau að skoða varðskip en myndin með fréttinni er úr þeirri heimsókn. Knattspyrnuskóli Vals hefur einnig verið mjög vel sóttur og hafa krakkarnir farið í strandfótbolta í Nauthólsvík, í fótboltagolf og fengið heimsóknir frá mfl. leikmönnum og landsliðskonum. Við viljum þakka öllum krökkunum sem hafa tekið þátt í námskeiðunum okkar sem og öllu starfsfólkinu sem hafa unnið frábært starf. Þann 9.ágúst hefjast svo körfubolta- og handboltanámskeið og má sjá upplýsingar um þau undir flipanum "sumarstarf".