Knattspyrnufélagið Valur

Tap á Ísafirði

Tap á Ísafirði

 

Valur tapaði gegn KFÍ í uppgjöri toppliðanna 89-65. Þar með lauk 9 leikja sigurgöngu Vals sem höfðu ekki tapað leik síðan í byrjun nóvember, þá einmitt fyrir KFÍ.

Flestir leikmenn Vals voru langt frá sínu besta. Of mikil orka fór í nöldur og mótmæli í garð dómara leiksins. Menn voru ekki nógu áræðnir sóknarlega og refsuðu Ísfirðingar grimmilega fyrir öll mistök gestanna. Ekki verður af KFÍ tekið að þeir spiluðu örugglega einn sinn besta leik í vetur með Igor Tratnik sem sinn besta mann. Eini ljóður á leik liðsins var þegar Pance Ilievski braut fólskulega á Snorra Sigurðssyni í fyrsta leikhluta, sem betur fer fyrir Pance misstu dómarar leiksins af atvikinu og því fékk hann að klára leikinn.

Hjá Val voru þeir Byron Davis (25 stig) og Guðmundur Kristjánsson bestir en aðrir skiluðu of litlu.

Næsti leikur Vals er útileikur gegn ÍA þann 19. febrúar.