
Í góðri samvinnu afmælisnefndar sem skipuð var vegna 100 ára afmælisins, stjórnar félagsins og starfsmanna þess hefur verið unnið að skipulagningu margra og fjölbreyttra atburða á afmælisárinu sem nú er hafið. Félagsmenn og gestir að Hlíðarenda að geta nálgast barmmerki með logo afmælisársins auk þess sem gefin eru Valsdagatöl sem fallegar myndir úr starfi félagsins prýða auk þess að minna okkur á þá fjölmörgu viðburði sem framundan eru.
Settar hafa verið upp íþróttakeppnir sem Valsmenn á öllum aldri munu geta tekið þátt í. Mikil áhersla er lögð á að allir iðkendur í yngri flokkum félagsins af báðum kynjum taki þátt í keppni við iðkendur í öðrum félögum á sama degi. Einnig hafa verið ákveðnar keppnir fyrir þá félaga sem ekki keppa lengur í hefðbundnum boltagreinum, en leggja stund á aðrar íþróttagreinar. Þá hefur verið lögð áhersla á að á árinu verði viðburðir sem Valsmenn á öllum aldri vilja mæta til og efla með því félagsstarfið í Val um leið og þeir hitta gamla félaga.
Afmælisárið verður haldið hátíðlegt í 366 daga því það hófst formlega í hádeginu á gamlársdag 2010, með því að merki afmælisársins var afhjúpað og kynnt að Hlíðarenda og fánar sem notaðar verða í tilefni af afmælinu voru teknir í notkun. Því lýkur svo með útnefningu íþróttamanns Vals 2011 á gamlársdag 2011 og það verður væntanlega mikil keppni um að fá þá nafnbót á afmælisárinu. Ekki er búið að ákveða endanlega alla viðburði, tónleika og keppni ársins, en flestir þeirra fara fram fyrri hluta ársins og hápunkturinn verður að sjálfsögðu á afmælisdaginn sjálfan þann 11. maí, auk þess sem dagarnir í kringum afmælisdaginn verða notaðir vel.
Dagskrá afmælisársins má sjá hér!