Knattspyrnufélagið Valur

3.2.2012 | 11.08 // Ragnhildur Skúladóttir

Cheerios mót Vals í Vodafone höllinni um helgina

Það verður líf og fjör í Vodafone höllinni um helgina, þegar fram fer 3. mót  Íslandsmóts 6.flokks karla (eldra ár) eða Cheerios mót Vals. 52 lið eru skráð til leiks og leiknir verða 112 leikir í 10 deildum. Margir aðilar koma að svona stóru móti, dómarar, ritarar og tímaverðir koma úr hópi iðkenda allt frá meistaraflokki og niður í 4.flokk. Þá koma margir aðilar að veitingasölu á meðan á mótinu stendur. Það er um að gera að koma við og kíkja á þessa ungu og efnilegu handboltamenn.  
31.1.2012 | 12.12 // Ragnhildur Skúladóttir

Dregið í undanúrslitum yngri flokka

Búið er að draga í undanúrslitum í bikar hjá yngri flokkunum í handbolta. 2.flokkur karla mætir liði Gróttu á Hlíðarenda. 3.flokkur karla á eftir að spila leik við lið Hauka í átta liða úrslitum, en með sigri í þeim leik mæta þeir liði FH á útivelli. Leikirnir í undanúrslitum eiga að hafa farið fram fyrir 20. febrúar.
30.1.2012 | 16.07 // Ragnhildur Skúladóttir

Darri valinn í æfingahóp U16 í fótbolta

Freyr Sverrisson landsliðsþjálfari U16 ára landsliðs Íslands í fótbolta hefur valið æfingahóp til æfinga um næstu helgi. Í hópnum eigum við Valsmenn einn leikmann, Darra Sigþórsson.
26.1.2012 | 10.13 // Ragnhildur Skúladóttir

Aðalfundur Fálkanna verður haldinn föstudaginn 3. febrúar

Aðalfundur Fálkanna verður haldinn föstudaginn 3. febrúar kl. 18:00 í Lollastúku.

 

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

 

  2. Skýrsla stjórnar

 

  3. Reikningar félagsins lagðir fram

 

  4. Umræður um skýrslu og reikninga og reikningar bornir upp

 

  5. Lagabreytingar

 

  6. Skýrsla stjórnar styrktarsjóðs

 

  7. Ákvörðun árgjalds

 

  8. Kosning formanns

 

  9. Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og stjórnar styrktarsjóðs

 

  10. Önnur mál.

26.1.2012 | 09.29 // Ragnhildur Skúladóttir

Æfingar hjá U17, U19 og A landsliðum kvenna um helgina, Elín Metta með A liðinu

Um næstu helgi fara fram æfingar U17, U19 og A landsliða kvenna í knattspyrnu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið þær Elínu Mettu Jensen, Hólmfríði Magnúsdóttur, Katrínu Gylfadóttur, Kristínu Ýri Bjarnadóttur, Mist Edvardsdóttur, Rakel Logadóttur og Þórdísi Maríu Aikman til æfinga með A liðinu.

Þá hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 valið þær Hildi Antonsdóttur, Svövu Rós Guðmundsdóttur og Telmu Ólafsdóttur.

Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 hefur valið þær Berglindi Rós Ágústsdóttur, Kötlu Rún Arnórsdóttur, Ingunni Haraldsdóttur og Lísbeti Sigurðardóttur. Myndin með fréttinni er af Elínu Mettu Jensen.
16.1.2012 | 11.21 // Ragnhildur Skúladóttir

Íþróttaskóli Vals hefst næsta laugardag

Á vegum félagsins er starfræktur íþróttaskóli barnanna sem ætlaður er börnum á aldrinum 2-6 ára. Dagskráin er fjölbreytt, þar sem aðaláhersla er lögð á að efla skyn-og hreyfiþroska barnanna. Helstu viðfangsefni eru hópleikir, boltaleikir, áhaldahringir og stöðvaþjálfun. Íþróttaskólinn fer fram á laugardögum í gamla og nýja slanum að Hlíðarenda frá 9:40-10:30. Námskeiðið er tíu skipti og stendur frá 21. janúar-24. mars og kostar 8.000 krónur. Skráning og greiðsla námskeiðsgjalds fer fram á síðunni https://valur.felog.is . Færri hafa komist að en vilja undanfarin ár og því leggjum við áherslu á að búið sé að skrá og greiða áður en námskeiðið hefst, en enn eru nokkur laus pláss. Skólastjóri er Soffía Ámundadóttir leikskólasérkennari og þjálfari 3.fl.kv í knattspyrnu, henni til aðstoðar eru leikmenn 3.fl.kvenna.
11.1.2012 | 11.12 // Ragnhildur Skúladóttir

Fimm leikmenn Vals í æfingahópi U19 ára kvenna

Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 kvenna hefur valið hóp til æfinga um næstu helgi. Í hópnum eru þær Katrín Gylfadóttir, Telma Ólafsdóttir og Þórdís María Aikman. Þá bætast þær Elín Metta Jensen og Hildur Antonsdóttir við á sunnudagsæfinguna. Á myndinni eru þær Katrín Gylfadóttir og Þórdís María Aikman.
11.1.2012 | 10.59 // Ragnhildur Skúladóttir

Sex Valsstelpur á leið á landsliðsæfingar með U17 í fótbolta

Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 kvenna hefur valið leikmenn til æfinga með U17 kvenna sem fram fara um næstu helgi. Í hópnum er sex leikmenn Vals, þær Berglind Rós Ágústsdóttir, Ingunn Haraldsdottir, Lísbet Sigurðardóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Elín Metta Jensen og Hildur Antonsdóttir. Þær Elín Metta og Hildur munu æfa með U17 á laugardag, en U19 á sunnudag. Á myndinni eru þær Elín Metta, Hildur og Svava Rós.
10.1.2012 | 15.07 // Ragnhildur Skúladóttir

Getraunaleikur Vals og 66° Norður hefst á laugardaginn

Fjölskylduleikurinn vinsæli getraunaleikur Vals og 66°NORÐUR, vorleikurinn byrjar n.k. laugardag.

Þetta er stórskemmtileg fjölskylduskemmtun sem allir geta tekið þátt í.

Undafarin ár hafa um 100 skemmtilegir Valsarar verið með, komið saman yfir kaffi og sætabrauði á laugardagsmorgnum spjallað við góða félaga og tekið þátt í virku félagsstarfi.

Leikurinn er þannig uppbyggður að þátttakendur greiða 2.500 kr á mann og eru 2 saman í liði. Smellið á fyrirsögn til að sjá meira.

9.1.2012 | 19.45 // Jóhannes Lange

Knattspyrnufélagið Valur auglýsir eftir hressu og drífandi fólki í eftirfarandi starf.

Knattspyrnufélagið Valur auglýsir eftir hressu og drífandi fólki í eftirfarandi starf.

6.1.2012 | 16.39 // Jóhannes Lange

Áramótabrenna Vals

Á sunnudaginn verður áramótabrenna Vals og verður tendrað í bálinu kl 20:00. Jafnframt viljum við minna á að flugeldasalan verður einnig opin.
6.1.2012 | 08.41 // Ragnhildur Skúladóttir

Agnar Smári, Bjartur og Sveinn Aron í U-20 í handbolta

Landsliðsþjálfarar U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta þeir Geir Sveinsson og Kristján Halldórsson hafa valið landslið sem mætir Finnum í vináttulandsleik í Laugardalshöll laugardaginn 14. janúar kl. 16. Í hópnum eru þrír leikmenn Vals þeir Agnar Smári Jónsson, Bjartur Guðmundsson og Sveinn Aron Sveinsson.
3.1.2012 | 09.39 // Ragnhildur Skúladóttir

Fimm leikmenn Vals boðaðir á æfingar U21 árs landsliðs Íslands

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U21 árs landsliðs Íslands hefur valið æfingahóp til æfinga fyrir leik gegn Azerbaijan. Í hópnum eru fimm leikmenn Vals þeir Ásgeir Þór Magnússon, Andri Fannar Stefánsson, Arnar Sveinn Geirsson, Kolbeinn Kárason og Rúnar Már S Sigurjónsson.
1.1.2012 | 11.57 // Jóhannes Lange

Íþróttamannvirki og skrifstofur Vals lokað 2.jan

Þann 2.janúar verða íþróttamannvirki og skrifstofur Knattspyrnufélagsins Vals lokuð.

Æfingartöflur yngri flokka munu hefjast aftur að venju þriðjudaginn 3.janúar.
31.12.2011 | 13.18 // Jóhannes Lange

Íþróttamaður Vals 2011 Anna Úrsúla Guðmundsdóttir

 Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er glæsilegur fulltrúi félagsins utan vallar sem innan og einstaklega góð fyirmynd fyrir íþróttaæsku landsins. Anna Úrsúla á að baki 77 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og er að mörgum talin mikilvægasti leikmaður landsliðsins. 

30.12.2011 | 15.18 // Jóhannes Lange

Flugeldasala Vals

Hin árlega flugeldasala Vals hefst á morgun 28.desember og við hvetjum alla Valsmenn að versla heimavelli!
29.12.2011 | 15.54 // Fréttastjóri

Íþróttamaður Vals 2011

Á gamlársdag verður valinn íþróttamaður Vals. Dagskráin hefst kl 12:30 í veislusal félagins.  Boðið verður uppá léttar veitingar.

Vonumst til að sjá sem flesta.
28.12.2011 | 12.35 // Ragnhildur Skúladóttir

Lagerbäck valdi þá Harald og Hauk Pál til æfinga með landsliðinu í knattspyrnu

Lars Lagerbäck þjálfari A landsliðs karla hefur boðað 28 leikmenn til æfinga dagana 12.-14. janúar og fara allar æfingarnar fram í Kórnum í Kópavogi. Eingöngu er um að ræða leikmenn sem leika með liðum á Íslandi og í Skandinavíu. Í hópnum eru tveir leikmenn Vals þeir Haraldur Björnsson og Haukur Páll Sigurðsson.
20.12.2011 | 17.11 // Jóhannes Lange

Áfram, hærra! Glæsileg hundrað ára saga Knattspyrnufélagsins Vals er komin út.

Áfram, hærra! Er mynd af vegferð Knattspyrnufélagsins Vals á fyrstu 100 árum þess. Bókin er ekki sagnfræðibók, heldur er hún brot minninga og mynda, skrifuð til heiðurs öllum þeim Valsdrengjum og Valsstúlkum sem gengin eru. Bókin er til hvatningar æskunni í Val og til fróðleiks og skemmtunnar öllum sem unna Val
20.12.2011 | 14.46 // Ragnhildur Skúladóttir

Íþróttaskóli Vals

Á vegum Knattspyrnufélagsins Vals er starfræktur Íþróttaskóli barnanna sem ætlaður er börnum á aldrinum 2-6 ára. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, þar sem aðaláhersla er lögð á að efla skyn- og hreyfiþroska. Helstu viðfangsefni eru hópleikir, boltaleikir, áhaldahringir og stöðvaþjálfun.

Íþróttaskólinn fer fram á laugardögum í gamla og nýja salnum að Hlíðarenda frá 9:40 – 10:30.

Sjá meira með því að fara í fyrirsögn
17.12.2011 | 15.58 // Ragnhildur Skúladóttir

Hallveig, Ragnheiður og Sara Diljá æfa með U18 í körfu

Valur.is hefur á undanförnum dögum birt fréttir af landsliðsfólkinu okkar í körfubolta. Nú hafa hefur Jón Halldór Eðvaldsson tilkynnt æfingahóp U18 ára landsliðs kvenna og í hópnum eru þrjár Valsstelpur þær Ragnheiður Benónísdóttir, Hallveig Jónsdóttir og Sara Diljá Sigurðardóttir. Sjá má allan hópinn á http://kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=7230. Hér fyrir neðan eru nöfn þeirra sem hafa verið tilnefnd upp á síðkastið.

A-landslið kvenna: Hallveig, Kristrún, María Ben, Guðbjörg
u-16 kvenna: Margrét og Elsa
u-16 karla: Hlynur Logi
u-18 kvenna: Hallveig, Ragnheiður og Sara Diljá

Á myndinni eru efri lína frá vinstri: Ragnheiður, Hallveig, Hlynur, Margrét og neðri lína frá vinstri: María Ben, Kristrún, Guðbjörg, Elsa og Sara Diljá.

16.12.2011 | 12.16 // Ragnhildur Skúladóttir

Grace æfir með U16 ára landsliðinu

Landsliðsþjálfarar U16 ára landsliðsins í handbolta hafa valið úrtakshóp til æfinga á milli jóla og nýárs. Í hópnum eigum við Valsmenn einn leikmann, Grace M. Þorkelsdóttur.
15.12.2011 | 13.00 // Jóhannes Lange

Valsrúmföt til sölu !

Fálkarnir hafa haft Valsrúmföt til sölu nú fyrir jólin. Nú er fyrsta sending uppseld og önnur sending komin. Valsrúmfötin verða til sölu í Valsbúðinni og hjá Fálkunum (baldur29@gmail.com). Ágóði af sölunni rennur til Fálkanna og til barna-og unglingasviðs.
15.12.2011 | 11.23 // Ragnhildur Skúladóttir

Elsa Rún, Margrét Ósk og Hlynur Logi í æfingahópi U16 í körfu

Tómas Albert Holton þjálfari U16 ára landsliðs kvenna í körfu hefur valið æfingahóp til æfinga sem fram fara á milli jóla og nýárs, í hópnum eru tveir leikmenn Vals þær Elsa Rún Karlsdóttir og Margrét Ósk Einarsdóttir. Þá hefur Hlynur Logi Víkingsson verið valinn til æfinga með U16 ára landsliði karla. Myndin með fréttinni er af þeim Elsu Rún og Margréti Ósk.
14.12.2011 | 08.48 // Ragnhildur Skúladóttir

Alexander, Daði og Gunnar á leið til Þýskalands með U18 í handbolta

Heimir Ríkharðsson landsliðsþjálfari U18 í handbolta hefur valið lið til þátttöku í æfingamóti í Þýskalandi, Viktors Cup. Mótið fer fram á milli jóla og nýárs. Í liðinu eru þrír leikmenn Vals þeir Alexander Örn Júlíusson, Daði Laxdal Gautason og Gunnar Malmquist Þórsson.
13.12.2011 | 09.09 // Ragnhildur Skúladóttir

Aðventukvöld í Friðrikskapellu

Árlegt aðventukvöld Friðrikskapellu verður haldið miðvikudaginn 14. desember kl. 20:00. Karlakórinn Fóstbræður og Valskórinn munum syngja og Þorsteinn Haraldsson verður með hugvekju. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir. 
13.12.2011 | 08.55 // Ragnhildur Skúladóttir

Dósa og jólatrjáasöfnun Vals

Líkt og um síðustu áramót eru unglingarnir í Val stórhuga varðandi dósa- og flöskusöfnun strax eftir áramótin. Að auki verður jóltrjám safnað í Valshverfinu gegn 1000 króna gjaldi.
Fálkarnir sem styðja við barna- og unglingastarfið hjá Val ætla að sjá um að skipuleggja þessa risasöfnun sem á að fara fram laugardaginn 7. janúar 2012. Fyrst þarf að auglýsa með því að dreifa miðum í hús og svo verður allsherjar söfnun þennan laugardag. Reyna á að ná yfir allt Valshverfið sem telur 12.000 íbúa.

Reiknað er með að árgangarnir sem eru frá 1996 - 1999 í öllum greinum verði virkjaðir í þetta verkefni og hugsanlega fleiri en verkefnið hentar ekki yngstu iðkendunum.

Munið að safna dósum og flöskum og geyma um hátíðirnar og Valskrakkarnir munu njóta góðs af.  
13.12.2011 | 08.52 // Ragnhildur Skúladóttir

Fjáröflun og góðverk á aðventunni

3. flokkur karla og kvenna í fótbolta og reyndar nokkrir úr sama árgangi í handbolta gengu í hús í Hlíðahverfinu á dögunum og seldu ýmsan varning í fjáröflunarskyni.
Hópurinn stefnir að því að komast á knattspyrnumót í sumar og er hugmyndin að kvenna og karla liðin fari saman í ferðina. Því þarf að finna skemmtilegt mót sem hentar báðum kynjum. Að þessu sinni var hluti af fjáröfluninni góðverk í leiðinni en eins og margir muna gerði 3. flokkur kvenna mörg slík á aðventunni í fyrra. Vörurnar sem unglingarnir seldu voru mandarínur, kaffi, friðarkerti og hin flottu Valsrúmföt.

Þannig safnaðist í sjóð krakkanna en ekki var síður mikilvægt að friðarkertin voru seld fyrir Hjálparstarf Kirkjunnar og skiluðu krakkarnir því næstum 90.000 krónum til hins mikilvæga starfs þeirra á aðventunni.
Þá má segja að sala á Valsrúmfötunum sé einnig góðverk því hluti ágóðans af sölu þeirra rann til krakkanna en afgangur til Fálkana sem hefur látið gera þessi rúmföt og selur í fjáröflunarskyni fyrir barna - og unglingastarf Vals.
12.12.2011 | 11.55 // Ragnhildur Skúladóttir

Darri, Sturla og Rökkvi æfa með U16 í handbolta

Einar Guðmundsson landsliðsþjálfari U16 ára landsliðs karla hefur valið 50 manna æfingahóp sem mun æfa saman á milli jóla- og nýárs í Kaplakrika. Í hópnum eru þrír Valsmenn, þeir Darri Sigþórsson, Sturla Magnússon og Rökkvi Finnsson.
10.12.2011 | 16.33 // Ragnhildur Skúladóttir

Fjórir leikmenn Vals í æfingahópi A-landsliðs kvenna í körfu

Sverrir Þór Sverrisson hefur boðað til fyrstu æfinga sem landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna í körfubolta. Æfingarnar hefjast milli jóla og nýárs og eru upphafið að undirbúningi fyrir Norðurlandamót kvenna sem fram fer í Noregi í lok maí. Í hópnum eru 22 leikmenn og þar af eru fjórir leikmenn Vals. Þetta eru þær Guðbjörg Sverrisdóttir, Hallveig Jónsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir og María Ben Erlingsdóttir.