Valsmenn fengu HK-inga í heimsókn í Vodafone-höllina fyrr í kvöld. Valsmenn voru fyrir leikinn í 2. sæti með 16 stig, 4 stigum á eftir Haukum en HK-ingar voru í því 5. með 13 stig.
Leikir liðanna hafa iðulega verið afar spennandi og því mátti búast við hörkuleik í kvöld. Það er hins vegar óhætt að segja að Valsararnir hafi varla tekið þátt í fyrri hálfleik leiksins en þegar flautað var til hálfleiks var staðan 16-10 fyrir HK en mestur var munurinn 9 mörk, 16-7.
Það virtist vera allt annað lið sem spilaði síðari hálfleikinn. Okkar menn spiluðu vel í síðari hálfleik og með mikilli baráttu náðu þeir að jafna leikinn, 24-24 þegar að um 5 mínútur voru til leiksloka. Þegar að hálf var til leiksloka og staðan 25-25 lentum við í því að fá 2 mínútur og víti á okkur og HK komst í 26-25 þegar að 15 sekúndur voru eftir en misstum boltann klaufalega frá okkur og þar sem við tókum markmanninn út af og spiluðum með 7 útileikmenn áttu HK-menn ekki í miklum erfiðleikum með að skora síðasta markið.
Það er lítið hægt að segja um fyrri hálfleikinn annað en það var allt sem klikkaði. Vörn, sókn og markvarsla. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá til leik liðsins en þar sýndi liðið mikinn karakter með því að ná að jafna leikinn og ekki munaði miklu að við hefðum getað stolið sigrinum.
Næsti leikur fer svo fram næstu helgi þegar að við mætum Haukum í úrslitaleik Eimskips bikarsins. Skyldumæting er á alla Valsara!
Áfram Valur!