Kæru Valsarar!
Í dag er stór stund í sögu Vals, þegar karla- og kvennalið félagsins taka bæði þátt í úrslitaleikjum Eimskipsbikarsins.
Þetta er þriðja árið í röð sem karlaliðið fer í Höllina, en síðustu tvö ár hefur liðinu tekist að vinna Bikarmeistaratitilinn með sigrum á Fram og Gróttu. Það yrði því einstakt afrek að vinna í dag og skrá nafn liðsins á spjöld sögunnar með því að vinna titilinn þriðja árið í röð. Kvennaliðið var síðast í bikarúrslitaleik árið 2000, þegar frækinn sigur vannst á Gróttu eftir tvíframlengdan leik. Það er mikið í húfi í dag, en ekki má gleyma því að þetta eru skemmtilegustu leikirnir sem leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, starfsmenn og allir sem að liðunum koma taka þátt í.
Undanfarnar vikur hefur undirbúningur fyrir helgina staðið yfir og nú styttist í stóru stundina. Við viljum hvetja alla Valsara sem vettlingi geta valdið til þess að mæta á leikina og styðja liðin, sem eiga stuðninginn sannarlega skilinn. Það verður upphitun á Hlíðarenda frá kl. 11:00 þar sem börnin fá candy-floss, andlitsmálun og drykk, auk þess sem 300 fyrstu sem mæta fá “bikarbol”, þannig að sem stærstur hluti Laugardalshallar verði rauður.
Við hvetjum fólk til þess að fjölmenna, taka aðra fjölskyldumeðlimi með, hvort sem þið eruð iðkendur, foreldrar, Hlíðabúar eða bara Valsarar – þá látið ekki ykkar eftir liggja í að skapa ógleymanlegan bikardag!
Látum óma í Laugardalshöll í dag – ÁFRAM VALUR!
Miðasala er hafin á www.midi.is og að sjálfsögðu hér í Vodafonehöllinni.
Hvetjum alla til að koma sér í rétta stemmningu og horfa á meðfylgjandi myndband