Bridgemóti Vals 2010 lauk í gærkvöldi. Þetta er í annað sinn sem keppt er um nýjan farandbikar. Sigurvegarar 2009 voru feðgarnir Jón Óskar Carlsson og Karl Ómar Jónsson. Nú sigruðu þeir KR ingarnir Auðunn Guðmundsson og Björn Árnason, í öðru sæti voru Guðmundur Ágústsson og Brynjar Níelsson og í þriðja sæti höfnuðu Pétur Antonsson og og Ragnar Björnsson. Þáttaka var góð og ljóst er að mótið er komið til að vera.