
Bridgemót Vals (Tvímenningur) verður haldið dagana 3. og 10. mars næstkomandi í Lollastúku. Þátttökugjald er 1.000 kr á mann. Skráning fer fram hjá Sigríði á skrifstofu Vals milli 9:00 og 14:00 í síma 414-8003 eða með tölvupósti á
sigga@valur.is
Mótið var endurvakið í fyrravor eftir nokkurt hlé og heppnaðist það stórvel. Á meðfylgjandi mynd má sjá sigurvegarana frá í fyrra, Jón Óskar Carlsson og Carl Jónsson og verður spennandi að sjá hvernig þeim kemur til með að ganga í ár!