
Þann 20. ágúst síðastliðinn fékk félagið afar hugulsama og fallega gjöf frá systkinunum Ingibjörgu S., Hafdísi og Gísla Þór, en faðir þeirra var Gísli Ingibergsson, löggiltur rafverktaki. Um er að ræða upprunalegan búning frá föður þeirra, sem notaður var á árunum 1936-1938 og er búningurinn í ótrúlega góðu ástandi. Búningurinn er gefinn í tilefni af 100 ára afmæli félagsins á næsta ári og ekki er úr vegi að hvetja alla sem vita um slíka dýrgripi að hafa samband við félagið. Nú er starfandi minjanefnd undir forystu Magnúsar Ólafssonar, en hún mun halda utan um minjar félagsins og stilla upp til sýnis á afmælisárinu. Góðri meðferð á öllum slíkum gripum er heitið. Hér má sjá bréf systkinanna sem fylgdi gjöfinni:
"Knattspyrnufélagið Valur
Reykjavík, 20. ágúst 2010
Faðir okkar Gísli Ingibergsson, löggiltur rafverktaki, æfði og keppti í knattspyrnu með Val á unglingsárum og fram til ársins 1939 að því er við teljum. Hann var alla tíð sannur Valsari í hjarta sínu.
Gísli Ingibergsson var fæddur 10. október 1920 og lét 23. október 1974. Hann var kvæntur Áslaugu Ingibjörgu Ásgeirsdóttur fæddri 27. september 1920 og lést hún 6. apríl 1981.
Við eigum í fórum okkar Valsbúning föður okkar, þ.e. treyja og stuttbuxur sem er mjög líklega frá árunum 1936-1938.
Langar okkur systkinum til að færa Knattspyrnufélaginu Val þennan búning að gjöf í tilefni af 100 ára afmæli félagsins á næsta ári með ósk um að félagsmenn fái að njóta hans. Við vitum að það hefði verið honum mikið gleðiefni að vita af gamla búningnum sínum í höndum síns gamla félags, Vals.
Virðingarfyllst,
Ingibjörg S. Gísladóttir
Hafdís Gísladóttir
Gísli Þór Gíslason"
Fyrir hönd félagsins vil ég koma á framfæri kæru þakklæti til fjölskyldunnar fyrir þessa glæsilegu gjöf, hún er mikils metin. Til samanburðar má sjá treyjuna eins og hún lítur út í dag ef farið er í myndagalleríið hér að neðan.
F.h. Vals,
Stefán Karlsson
Framkvæmdastjóri