
Fyrstu sumar námskeiðum Vals er lokið með góðri þátttöku en tæplega 100 krakkar voru í Knattspyrnuskóla Vals og Sumarbúðum í Borg. Knattspyrnuskólinn er hálfs dags námskeið frá 9-12 en Sumarbúðir í Borg er allan daginn frá 9-16 en boðið er upp á gæslu á milli 8 og 9 og 16 og 17. Dagskrá sumarbúðanna er mjög fjölbreytt en krakkarnir hafa fengið að kynnast körfubolta, handbolta, blaki, fimleikum og pókó. Þau hafa einnig farið í sund, í bátsferð, á Árbæjarsafn, í Nauthólsvík og í heimsókn til Landhelgisgæslunnar svo eitthvað sé nefnt. Krakkarnir í knattspyrnuskólanum hafa verið í alls kyns þrautum og keppnum og prófað strandfótbolta í Nauthólsvík. Mikil gleði og kátína hefur ríkt í Valsheimilinu og hlökkum við til að taka á móti krökkum á næstu námskeið. Rafræn skráning er á heimasíðunni undir flipanum "sumarstarf".