Knattspyrnufélagið Valur

Kemur 100. titill félagsins í hús fyrir 100 ára afmælið?

Eins og eflaust margir hafa tekið eftir varð meistaraflokkur kvenna í Val bikarmeistari í knattspyrnu síðastliðinn sunnudag. Í kjölfarið hefur sprottið upp umræða um titlafjölda félagsins, en eins og fram hefur komið var þetta 99. Íslands- eða bikarmeistaratitill félagsins í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik í 99 ára sögu þess. Þar sem kvennaliðið okkar í knattspyrnu er í góðri stöðu á toppi Pepsideildar kvenna er sá möguleiki fyrir hendi að 100. titill félagsins vinnist þegar á þessu ári, sem væri óneitanlega frábært og skemmtileg staðreynd í ljósi 100 ára afmælis félagsins á næsta ári. Af þessu tilefni er gaman að rýna aðeins í tölfræði og staðreyndir um þá titla sem þegar hafa unnist, burtséð frá því hvenær sá hundraðasti kemur í hús.

Valur er upphaflega stofnað sem knattspyrnufélag og fyrstu áratugina var aðeins leikin knattspyrna af körlum í félaginu. Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn vannst árið 1930 og í kjölfarið kom afar farsæll tími, en á tímabilinu 1930-1945 unnust 11 Íslandsmeistaratitlar í knattspyrnu karla. Alls hefur meistaraflokkur karla í knattspyrnu 20 sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 2007, sælla minninga.

Fyrsti bikarmeistaratitill félagsins kom árið 1965, en saga bikarkeppninnar er töluvert yngri en Íslandsmótsins. Alls hefur meistaraflokkur karla í knattspyrnu 9 sinnum orðið bikarmeistari en það gerðist síðast árið 2005.

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hefur verið afar sigursæll á nýrri öld, en var einnig sérstaklega sigursæll á 9. áratugnum. Kvennaknattspyrna hefur verið iðkuð í Val frá því 1977 og fyrsti titill félagsins í kvennaknattspyrnu vannst strax árið eftir, en þá urðu stelpurnar Íslandsmeistarar. Alls hefur kvennalið Vals í knattspyrnu unnið 9 Íslandsmeistaratitla, þar af hefur liðið unnið 4 síðustu ár og á möguleika á að bæta þeim fimmta í röð við nú í haust.

Tölfræði meistaraflokks kvenna er enn ótrúlegri í bikarkeppni, en liðið hefur orðið 12 sinnum bikarmeistari frá árinu 1984, þar af 6 sinnum á 9. áratugnum og 5 sinnum á þessari öld.

Af ofangreindu má sjá að af 99 titlum félagsins hafa 50 þeirra unnist í knattspyrnu, 29 sinnum hefur liðið hampað titli í karlaflokki og 21 sinnum í kvennaflokki.

Handboltinn kom fyrst til sögunnar í félaginu á fjórða áratug síðustu aldar og þá voru eingöngu karlar, en árið 1948 kom kvennaboltinn til sögunnar. Fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins í handbolta kom árið 1940 (fyrsta Íslandsmótið í handbolta) og síðan þá hafa alls 21 Íslandsmeistaratitill unnist í handbolta karla með nokkuð jafnri dreifingu ef undanskilin eru árin 1956-1972, en þá var engin uppskera í karlahandbolta hjá félaginu. Síðast varð meistaraflokkur karla Íslandsmeistari í handbolta árið 2007, sama ár og meistaraflokkur karla í knattspyrnu.

Meistaraflokkur karla í handbolta hefur 7 sinnum orðið bikarmeistari, þar af tvisvar á síðustu þremur árum, þ.e. 2008 og 2009.

Kvennalið Vals í handbolta hefur alls 13 sinnum hampað Íslandsmeistaratitli, en Sigríður Sigurðardóttir hefur oft verið nefnd sem stærsta nafn kvennahandboltans í Val, enda var hún stærsta stjarnan í afar sigursælu liði Vals á sjöunda áratugnum. Á árunum 1962-1974 varð liðið 11 sinnum Íslandsmeistari, hvorki meira né minna, en árið 1983 kom tólfti Íslandsmeistaratitillinn í hús. Sá þrettándi kom síðan nú í vor eftir 27 ára bið.

Kvennaliðið hefur þrisvar orðið bikarmeistari, árin 1988, 1993 og nú síðast árið 2000.

Af ofangreindu má sjá að alls hafa unnist 44 Íslands- og bikarmeistaratitlar í 99 ára sögu handboltans í Val, 28 karlamegin og 16 kvennamegin.

Körfubolti er langyngsta greinin í félaginu, en í haust verða 40 ár frá stofnun körfuknattleiksdeildar Vals. Alls hafa 5 Íslands- og bikarmeistaratitlar unnist hjá körfuknattleiksliðum félagsins, allir unnust þeir í körfuknattleik karla snemma á 9. áratugnum. Liðið varð Íslands- og bikarmeistari árið 1980, bikarmeistari árið 1981 og síðan aftur tvöfaldir meistarar árið 1983. Körfubolti kvenna á sér afar stutta sögu innan félagsins og þar hefur ekki unnist Íslands- eða bikarmeistaratitill ennþá, en eftir langt hlé var körfubolti kvenna endurvakinn innan félagsins árið 2007.

Samtals gera þetta því 99 titla og möguleikann á 100 titlum fyrir 100 ára afmæli. Þegar rýnt er í tölfræðina er hægt að lesa töluvert úr henni um sögu félagsins. Það sem stendur kannski upp úr er að sjá hversu sigursælt félagið hefur verið á þessari öld. Alls hafa unnist 17 Íslands- og bikarmeistaratitlar frá árinu 2000, þar af 10 í kvennaknattspyrnu, 2 í karlaknattspyrnu, 3 í karlahandbolta og 2 í kvennahandbolta.