
Sunnudaginn næstkomandi mætast Valur og Stjarnan í úrslitum VISA bikars kvenna á Laugardalsvelli.
Leikurinn sjálfur hefst kl. 16:00 en frá kl. 14:30 verður sannkölluð fjölskyldudagskrá á vegum Stjörnunnar og Vals við þjóðarleikvanginn. Meðal þess sem verður í boði eru hoppukastalar fyrir yngri og eldri börn, skemmtiatriði og boltaþrautir, andlitsmálning fyrir stuðningsmenn félaganna auk þess sem boðið verður upp á grillaðar pylsur og Svala.
Allir stuðningsmenn beggja liða eru hvattir til að mæta tímanlega og byggja upp góða stemmningu fyrir þennan mikilvæga leik!
Miðasala er hafin á miði.is og er aðgangseyrir fyrir fullorðna kr. 1.000, en einnig verður hægt að kaupa miða á staðnum. Hægt er að nálgast boðsmiða fyrir 16 ára og yngri hjá félögunum, í tilfelli Vals verður miðum dreift í yngri flokka auk þess sem þeir munu liggja í afgreiðslunni.
Það er ljóst að stálin stinn munu mætast á sunnudaginn, enda hefur báðum leikjum þessara liða í sumar lokið með jafntefli, nú síðast á þriðjudaginn í Garðabæ.
Hvetjum stelpurnar til dáða og tökum fjölskylduna með - Áfram Valur!