
Knattspyrnudeild Vals hefur samið við 23 ára gamlan írskan framherja, Diarmuid O'Caroll. Diarmuid er uppalinn hjá skoska stórveldinu Celtic, en hefur þar að auki leikið með skosku liðunum Celtic, Ross County og Airdire United, ásamt Morecambe í Englandi.
Danski framherjinn Danni König er hinsvegar horfinn á braut, þar sem klásúla í samningi hans kvað á um að ef lið á meginlandinu myndi bjóða honum samning þá væri honum frjálst að fara. Í gær kom það upp að danska liðið Bronshoj samdi við König, og því varð að hafa snör handtök.
O'Carroll fékk skínandi meðmæli frá umsagnaraðilum, og hafði áhuga á að koma til Íslands. Við bjóðum því Diarmuid O'Caroll velkominn í Val, en leikheimild fyrir hann er í höfn svo hann verður til taks gegn Breiðabliki á miðvikudaginn næsta.