
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af vöskum sjálfboðaliðum félagsins sem eru að hjálpa til við að klára framkvæmdir við gamla íþróttahúsið. Stefnt er að því að framkvæmdir klárist fyrir mánaðamót og hvert handtak skiptir máli. Þeir sem hafa komið sjá að algjör bylting verður á ásýnd hússins sem á eftir að nýtast félaginu vel og lengi. Það er gaman hjá sjálfboðaliðunum - við hvetjum alla til að hafa samband við Tedda í síma 862-8990 eða Brynjar í síma 840-4040 og taka þátt í skemmtilegu starfi! Við segjum bara eins og Séð og Heyrt - sjáið myndirnar!