Knattspyrnufélagið Valur

Vel mætt í fyrsta dögurð Vals-getrauna!

Það var einstaklega góð stemmning í veislusalnum okkar að Hlíðarenda síðastliðinn laugardag, en þá var fyrsti dögurður (brunch) Vals-getrauna haldinn. Mætingin var frábær en um 100 manns mættu og brögðuðu á lystilega vel matreiddum dögurð meistarakokksins Lárusar Loftssonar. Guðbrandur Stígur getraunasérfræðingur þrumaði yfir mannskapnum og var gaman að sjá viðtökurnar, fjölbreyttur hópur Valsara sem átti góða stund saman!