Knattspyrnufélagið Valur

Hlutverk okkar er að hámarka lífsgæði, vellíðan og árangur Valsmanna.

Við munum bjóða uppá framúrskarandi íþróttauppeldi sem styrkir sjálfsmynd og heilbrigt líferni barna og ungmenna.  Við gefum afreksfólki bestu mögulegu forsendur til að þroska og þróa hæfileika sína.  Við veitum Valsfólki á öllum aldri tækifæri til að rækta tengsl við félagið og aðra Valsmenn.

Gildin okkar eru: 

Ábyrgð – Metnaður – Lífsgleði – Heilbrigði

Ábyrgð

  • Stýrum fjárhag okkar af ábyrgð og festu
  • Sýnum ábyrgð við uppeldi ungmenna
  • Heiðarleiki gagnvart umhverfinu

 

Metnaður

  • Mesta afreksfélag landsins
  • Aðstaða okkar ávallt til fyrirmyndar
  • Gæði þjónustu fyrsta flokks
  • Valsmenn öðrum til fyrirmyndar
  • Fagmennska innan vallar sem utan 

 

Heilbrigði

  • Hlíðarendi reyklaust svæði
  • Reglusemi og heilbrigð lífsviðhorf
  • Þjálfarar fyrirmynd iðkenda og stunda heilbrigt líferni     
  • Virðing gagnvart náunganum og mótherjum

Lífsgleði

  • Látum ekki kappið bera fegurðina ofurliði
  • Ánægðir starfsmenn
  • Höfum gaman af starfinu
  • Ánægðir iðkendur/foreldrar
  • Valsmenn á öllum aldri vilja taka þátt