Valsfögnuður 14.febrúar
Kæru Valsarar nær og fjær !
Húsið opnar kl.19:15 og er því tilvalið að gera sér gott kvöld
með því að bjóða elskhuga og/eða vini út að borða og halda síðan
beinustu leið að fagna degi ástar og vináttu ásamt fríðum flokki
Valsara, er eitthvað betra ?
Í upphafi kvölds verður Söngvakeppni sjónvarpsins varpað upp á
skjá en útsendingin hefst kl. 19:45 og því tilvalið að hópa saman
góðum vinum í risastórt Eurovision party.
Veislustjórar kvöldsins eru ekki af verri endanum en þeir verða
engir aðrir en Guðmundur Benediktsson og Sigurbjörn Hreiðarsson.
Þeir munu leiða okkur í gegnum kvöldið og kynna fyrir okkur allan
þann fjölda skemmtiatriða sem verða á dagskrá.
Þorsteinn Guðmundsson ætlar að koma og vera með uppistand, nokkrir
leikmenn meistarflokks kvenna verða með glæsilegt skemmtiatriði
ásamt óvæntum uppákomum!
Barinn verður opinn allt kvöldið þar sem hægt verður að kaupa
áfenga sem og óáfenga drykki á sanngjörnu verði.
Að loknum skemmtiatriðum verður góðri tónlist hent á fóninn og
dansað framá nótt :)
Við hvetjum alla til þess að hópa sig saman og fjölmenna á þennan
frábæra viðburð, en hann er mjög mikilvægur liður í uppbyggingu
hópsins fyrir komandi tímabil.
Með samheldni og liðsheild náum við markmiðum okkar, að koma
Meistaraflokki kvenna Vals í knattspyrnu í hæstu hæðir á
ný...
Miðaverð eru litlar 1500 kr. í forsölu og 2000 kr. við hurð.
Forsala miða hefst í sjoppunni í Valsheimilinu þanni 11.febrúar og
mun standa yfir þar til klukkan kl.16 á laugardaginn (14.feb).
Athugið að það er 18 ára aldurstakmark.
Hlökkum til að sjá ykkur.