Skemmtilegustu leikir vetrarins í boði Fálka
Fjórði flokkur kvenna Valur - Fram
Síðasti leikur tímabilsins undir leikjaröðinni Skemmtilegustu leikir vetrarins var leikinn í gærkvöldi, sunnudaginn 22. mars. Nú var komið að stelpunum í 4. flokki að spila sinn leik. Að þessu sinni voru andstæðingarnir Framstelpur. En leikurinn er síðasti heimaleikur Vals á tímabilinu.
Það er ekki stór hópur sem æfir með fjórða flokki kvenna en þær hafa staðið sig mjög vel í vetur. Það kæmi mér ekki á óvart ef við ættum eftir að sjá töluvert af þessum stelpum spila með meistaraflokki í framtíðinni. Ég hef fylgst nógu vel með þeim til að vita að a.m.k. þrjár þeirra hafa verið valdar í landsliðshóp í sínum aldursflokki. Við höfum hampað strákaflokkunum nokkuð fyrir sína frammistöðu í vetur en ég hvet alla handboltaáhugamenn til að gefa þessum stelpum gaum. Þær verðskulda það að við stöndum þétt að baki þeirra. Fyrir leikinn var Valsliðið búið að tryggja sér annað sætið í efstu deild en Framstelpur voru í fjórða sæti.
Fyrir leik komu þær Kristín Guðmundsdóttir og Sigurlaug Rúnarsdóttir úr meistaraflokki Vals og heilsuðu upp á leikmenn.
Valsliðið var þannig skipað:
Gunnur Hanna Sigurðardóttir markmaður
Útispilarar:
Guðný Kristín Erlingsdóttir,
Jakobína Kristinsdóttir,
Heiðrún Berg Sverrisdóttir,
Daníela Stefánsdóttir,
Anna Hildur Önnu Björnsdóttir,
Auður Esther Gestsdóttir,
Vala Magnúsdóttir,
Ugla Svölu Baldursdóttir og
Sigríður Birta Pétursdóttir.
Þjálfari stelpnanna er Ágústa Edda Björnsdóttir sem jafnframt er yfirþjálfari yngri flokka handboltans í Val.
Að lokinni kynningu leikþular hófst rimman.
Valsmenn komust fyrst á blað þegar Auður Esther prjónaði sig í gegnum Fram vörnina og skoraði eftir mikla baráttu. En Framstelpur svöruðu strax en við náðum yfirhöndinni á sömu mínútunni. Þrátt fyrir hraðar sóknir beggja liða í upphafi leiks virtist vera nokkur taugaspenna í byrjun. Töluvert var um tæknifeila hjá báðum liðum sem skrifast e.t.v. á umgjörðina. Það er jú ekki á hverjum degi sem maður heyrir nafnið sitt bergmála í húsinu ef maður ver eða skorar. En blessunarlega náðu leikmenn að hrista af sér byrjunarhrollinn og spiluðu á köflum mjög hraðan og flottan handbolta. Valsstelpur virtust um miðjan fyrri hálfleik ætla að taka öll völd þegar þær skoruðu þrjú mörk í röð án þess að fá á sig eitt einasta á sama tíma. En Framstelpur börðust af kappi og náðu að svara með þriggja marka syrpu skömmu fyrir hlé en við áttum síðasta mark fyrri hálfleiks og stóð því 13 - 12 fyrir okkur í hálfleik.
Það blés ekki byrlega fyrir okkur í seinni hálfleik þar sem Framararnir skoruðu þrjú fyrstu mörk hálfleiksins. Við vorum nú lentar tveimur mörkum undir í fyrsta skipti í leiknum. Við vorum alls ekki nógu þéttar í vörninni en hún opnaðist iðulega mjög illa svo að Gunnur í markinu átti lítin möguleika á að verja frá línumönnum Framara. Engu að síður átti Gunnur mjög góðan leik og varði iðulega með tilþrifum þegar ég hélt að hún ætti engan séns ein á móti manni. Við komum okkur sem betur fer inn í leikinn að nýju og náðum að jafna og lengi leiks var spennan gífurleg þar sem jafnt var á öllum tölum; 16-16, 17-17, 18-18, 19-19, 20-20 og 21-21. En þá skoruðu Framstelpur tvö mörk í röð en við náðum ekki að svara nema með einu. Lokatölur urðu því 22-23 fyrir Fram.
Bæði lið eiga skilið þakklæti fyrir ákaflega spennandi leik. Að mínu mati vorum við óþarflega gestrisin við gestina úr Safamýri. Það er góður sigur að taka vel á móti fólki en óþarfi að leysa þá út með tveimur stigum áður en þeir halda heim til sín. Ég er enn sannfærðari um hæfileika Valsstelpnanna þó svo að þær hafi ekki náð að landa sigri. Framundan er úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Þar óskum við þeim alls hins besta og hvetjum alla Valsmenn til að hvetja þær til sigurs.
Helstu tölur: Gunnur varði 13 skot í leiknum (þar af eitt víti). Mörkin: Heiðrún 5, Daníela 1, Anna Hildur 2, Auður Esther 5, Vala 6 og Sigríður Birta 3.
Fálkar þakka: Kristínu Guðmundsdóttur og Sigulaugu Rúnarsdóttur úr meistaraflokki fyrir að koma til að heilsa upp á stelpurnar. Baldur Þorgilsson fær þakkir fyrir myndatöku. Magnús Guðmundsson fær þakkir fyrir að sjá um starf vallarþular í upphafi leiks. Síðast en ekki síst er Signýju Pálsdóttur þakkað fyrir samstarf á ritaraborðinu.
F.h. Fálka:
Sigurður Ásbjörnsson og
Jón Sveinsson