Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Vals - Þór Hinriksson lætur af störfum

Þór Hinriksson og knattspyrnufélagið Valur hafa gert með sér starfslokasamning þess efnis að Þór hætti störfum sem annar af aðalþjálfurum meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Þessi starfslok eru að frumkvæði Þórs þar sem hann er í miklum önnum í fyrirtæki sínu Battar Knattspyrnuþjálfun.

Þór tók við þjálfun liðssins um mitt síðasta sumar við erfiðarar aðstæður og hefur komið að þeirri uppbyggingu sem liðið er í um þessar mundir. Valur þakka Þór fyrir öll hans góðu verk og hlakkar til að vinna með honum aftur í framtíðinni. Þór vildi láta hafa eftir sér að hann óskar leikmönnum Vals og félaginu öllu góðs gengis í sumar.

Ólafur Brynjólfsson þjálfar lið Vals.