Hreinsunardagurinn 19.maí.
Mig langar til að þakka öllum sem tóku þátt í hreinsunarátakinu hér á Hlíðarenda í gær. Það var kannski ekki fjölmennt en hinsvegar góðmennt. Það var virkilega vel tekið á því og allt íþróttasvæðið var gengið og allt laust rusl týnt upp sem fokið hafði í girðingar og trjágróður.
Nú veit ég ekki hvað fólk er athugult en í mínum augum var allt annað að koma að svæðinu í morgun en í gær. Mig langar að skapa smá vakningu um útlit og umhirðu Hlíðarenda. Það er ekki nóg að hugsa stórt og ætla að byggja falleg mannvirki ef bakgarðurinn er allur í órækt. Það væri gaman að koma á hreinsunardegi snemma í maí ár hvert þannig að Hlíðarendi skartaði sínum bestu fötum á afmælisdegi félagsins 11. maí. Það væri einnig gaman að ná saman hópi fólks sem hefur kannski meiri áhuga á þessu en aðrir og við tökum einstaka umhirðumál hér fyrir. Hér má nefna svæðið umhverfis Friðrikskapellu, þar þarf að snyrta tré og laga ýmsa smáhluti í umhverfinu. Það þarf að klippa hekkið við bílastæðin sem er orðið svo úr sér vaxið að það skemmir bíla á bílastæðinu. Á laugardaginn verður það tekið í gegn og ef einhverjir vilja taka þátt í því þá byrjum við kl. 8:30.
Með þökk fyrir hjálpina
f.h. Valsmanna hf.
Brynjar Harðarson
brynjar@valur.is
Hér fylgja nokkrar myndir: Fyrir og eftir mynd. Fallegra að hafa steina við tréin. Mynd af hluta af hópnum.