Valur - ÍA 4-2 (3-1) Umfjöllun
Valur - ÍA 4 - 2 (3 - 1)
Íslandsmótið í knattspyrnu, Pepsi-deild karla, 10. umferð. Vodafon-völlurinn að Hlíðarenda, sunnudaginn 28. júní 2015, kl. 19:15
Aðstæður: Góðar, hitastig 14°c, hæg austanátt. Áhorfendur: Um 1000.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson . Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Smári Stefánsson
Valsmenn unnu góðan sigur á Skagamönnum í kvöld og eru í Evrópusæti að tíu umferðum loknum. Nokkrar breytingar voru á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Sigurður Egill Lárusson, vinsrti útherji, var fjarri góðu gamni vegna veikinda og kom Einar Karl Ingvarsson inn í liðið í hans stað. Kristinn Ingi Halldórsson kom aftur inn í stöðu hægri útherja í stað Daða Bergssonar.
Valsmenn voru mun atkvæðameiri í upphafi og strax á 2. mínútu skapaði Patrick Pedersen hættu inni í vítateig Skagamanna sem náðu að bjarga í horn. Þrátt fyrir góða sóknartilburði fyrsta stundarfjórðunginn tókst Valsmönnum ekki að brjóta varnir Skagamanna á bak aftur. Það var ekki fyrr en á 20. mínútu að fyrsta markið leit dagsins ljós. Patrick Pedersen, atkvæðamesti sóknarmaður Vals í leiknum, kom sér í gott færi og skaut föstu skoti að marki, af markverðinum hrökk boltinn út í teiginn, þar var Andri Fannar Stefánsson mættur, réttur maður á réttum stað, og sendi knöttinn með góðu skoti í netið, 1-0.
Valsmenn höfðu góð tök á leiknum og yfirspiluðu Skagamenn á löngum köflum í fyrri hálfleik. Skagamenn voru þó nærrri búnir að jafna í stöðunni 1-0, þegar Ólafur Valur Valdimarsson átti bylmingsskot fyrir utan teig sem small í samskeytum Valsmarksins. En Valsmenn hertu tökin og á 30. mínútu juku þeir forskotið. Kristinn Freyr fékk knöttinn, óvaldaður á miðjunni, sendi fallega stungusendingu fram á Patrick Pedersen sem hljóp af sér varnarmann, lék laglega framhjá úthlaupandi markverðinum og sendi knöttinn í tómt markið, 2-0.
Slíkir vorur yfirbuðir Vals að það var þvert á gang leiksins þegar Skagamenn skoruðu á 37. mínútu. Ásgeir Marteinsson, sprækur sóknarmaður Skagamanna (ekki ósvipaður Pétri Péturssyni, fyrrum landsliðsmiðherja á velli), sendi góðan bolta fyrir markið. Varnarmenn Vals höfðu öll tök á að hreinsa frá en létu boltann sigla fram hjá sér að fjarstönginni þar sem Jón Vilhelm Ákason var mættur og renndi honum auðveldlega í netið, 2-1.
En Valsmenn létu þetta mark ekki slá sig út af laginu. Yfirburðir þeirra voru umtalsverðir í hálfleiknum og á 41. mínútu undirstrikuðu þeir þá með þriðja markinu. Nú höfðu Andri Fannar og Patrick hlutverkaskipti frá því fyrsta markinu, harðri sókn Valsmanna lauk með hörkuskoti frá Andra Fannari, Páll Gísli, markvörður Skagamanna, hálfvarði og nú var það Patrick Pedersen sem fylgdi vel á eftir, hirti boltann og sendi hann í netið, 3 -1. Var þessi staða í hálfleik síst of stór miðað við gang leiksins.
Valsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn einnig vel. Á 47. mínútu bjarga Skagamenn á línu og skömmu seinna sendir Kristinn Ingi knöttinn í netið eftir hörkuskot Einars Karls sem markvörður varði út í teig en var dæmdur rangstæður. En eftir tuttugu mínútna leik í seinni hálfleik ná Skagamenn að minnka muninn aftur niður í eitt mark. Valsmenn missa knöttinn á vondum stað á 65. mínútu og Markel Andelkovic, einn besti leikmaður Akranessliðsins, lék knettinum í átt að vítateig Valsmanna, sendi hann fyrir fætur Arsenij Buenikij sem var komin í í ákjósanlegt færi, óvaldaur vinstra meginn í teignum, og Buenikij urðu ekki á nein mistök, skoraði með góðu skoti í hægra hornið, 3-2.
Skagamenn færðust allir í aukana við markið en að sama skapi riðlaðist leikur okkar manna töluvert næstu mínúturnar. En við getum þakkað fyrir að Akranessliðið er ekki sérlega sterkt um þessar mundir og náði ekki að láta kné fylgja kviði. Síðasta markverða tilraun þeirra var góð aukasyrna Jóns Vilhelms á 77. mínútu af 25 m færi, rétt yfir markið. Valsmenn náðu vopnum sínum á nýjan leik og á 82. mínútu gerðu þeir út um leikinn með fallegasta marki leiksins. Kristinn Freyr átti þá frábæra utanfótarsendingu inn fyrir vörnina á Kristinn Inga sem afgreiddi knöttinn snyrtilega í hægra markhornið, 4-2.
Á löngum köflum var þessi leikur Valsmanna sérlega góður, þá einkum í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var slakari, á köflum meiri ónákvæmni og einbeitingarleysi. Sterkara lið em Skaginn hefði eflaust refsað okkur miskunnarlaust í seinni hálfleik. En gegn Skagamönnum náðu Valsmenn vopnum sínum aftur og sigldu heim öruggum sigri. Ian Williamsson, Haukur Ásberg Hilmarsson og Tómas Óli Garðarson komu inná sem varamenn þegar líða tók á seinni hálfleik í stað Einars Karls Ingvarssonar, Baldvins Sturlusonar og Kristins Inga Halldórssonar og héldu ágætlega leikskipulaginu.
Framundan er hlé í Pepsi-deildinni. Næsti leikur í deildinni er erfiður útileikur gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Það þarf engum blöðum um það að flétta að verði úrslit þess leiks okkur í hag þá verða Valsmenn í einu af efstu sætunum að loknum fyrri hluta mótsins. Ólafur og Sigurbjörn hafa tæpan hálfan mánuð til að stilla strengina fyrir þá viðureign. Valsliðið spilar hörkugóðan fótbolta á köflum. Þá kafla þarf að lengja. Takist það, þá munu öll liðin í deildinni hræðast Valsliðið. Maður leiksins að Hlíðarenda í kvöld var tvímælalaust Patrick Pedersen, ekki aðeins að hann hafi skorað tvö góð mörk, heldur er eljusemi hans og óbilandi barátttugleði til fyrirmyndar fyrir allt liðið. ÁFRAM VALUR!.