Darri Sigþórsson skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals
Darri Sigþórsson, gríðarlega efnilegur 18 ára uppalinn Valsmaður, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Darri glímdi við meiðsli allt síðastliðið timabil en mun eflaust banka á dyr meistaraflokks á komandi tímabili.
Darri hefur á 13 landsleiki með U-17, og 2 með U-19 og er talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins.
Í tilefni af undirskriftinni náði valur.is tali af Darra:
"Það er mikill heiður að gera nýjan samning við þennan
frábæra klúbb og uppeldisfélagið mitt. Hér líður mér best og hér
vil ég vera.
Mikill uppgangur hefur einkennt síðustu ár innan
knattspyrnudeildarinnar og spennandi tímar
framundan.
Ég var að glíma við erfið meiðsli á síðasta tímabili en er
allur að koma til. Vonandi nær maður eitthvað að banka á
dyrnar.
Áfram Valur! "