Dómaramál.

Við viljum athuga áhuga fleiri foreldra, eða annarra Valsara, á að koma til liðs við okkur og gera starfið ennþá betra. Engin krafa er gerð um hversu marga leiki hver og einn dæmir, einn leikur er betri en enginn. Allir þeir sem dæma fyrir félagið hafa kost á því að fara á dómaranámskeið sem haldið verður á næstu vikum í Valsheimilinu.

Margir af þeim sem dæmdu fyrir okkar á síðasta tímabili höfðu það að markmiði að ná að lámarki 10 leikjum. Þau sem ná því fá frítt á alla í Pepsídeild karla- og kvenna auk þess að fá frítt á landsleiki Íslands. Við skorum því á alla sem hafa áhuga að taka þátt í þessu á komandi tímabili.

Áhugasamir aðilar geta haft samband við mig í síma 661-4807 eða í gegnum tölvupóst: bgylfa@gmail.com

Kveðja, Birkir Örn - Dómarastjóri knattspyrnudeildar Vals.