Bikarleik Keflavíkur og Vals frestað til morguns

Sökum þess að ofsaveður gengur yfir landið í dag mánudaginn 7. desember hefur bikarleik Keflavíkur og Vals verið frestað. 

Búið er að finna nýjan leikdag og fer leikurinn fram á morgun þriðjudaginn 8. desember klukkan 19:15 í TM-höllinni Reykjanesbæ.