Ljósahátíð á Hlíðarenda

Á fimmtudaginn 17.desember kl.17:00 verða flóðljósin vígð og mun Dagur B.Eggertson borgarstjóri telja niður með okkur. Af því tilefni langar okkur að blása til smá hátíðar. Okkur langar til að sem allra flestir foreldrar og Valsmenn verði í stúkunni þegar við flóðlýsum aðalleikvanginn í fyrsta skipti. Að því loknu verður boðið upp á kakó og vöfflur.

Láttu endilega sjá þig og taktu alla Valsara í kringum þig með þér.

Með bestu Vals-og jólakveðju.