Magnþrungin spenna á Jólabingói Vals
Jólabingó Barna- og Unglingasviðs Vals var haldið fyrir fullum sal í gær sunnudaginn 13. desember í Valsheimlinu að Hlíðarenda. Óhætt er að segja að bingóið hafi fallið vel í kramið hjá bæði ungum sem öldnum enda bingóið hin mesta skemmtun.
Vilhelm Anton Jónsson - eða Villi Naglbítur eins og hann er betur þekktur stjórnaði bingóinu af stakri snilld og var spennan í salnum oft á tíðum magnþrungin. Markmiðið með viðburðinum var að að foreldrar og iðkendur ættu góða stund saman á aðventunni og um leið afla tekna fyrir yngriflokkastarf félagsins.
Barna- og unglingasvið Vals vill að endingu koma á framfæri bestu þökkum til þeirra fjölmörgu fyrirtækja og einstaklinga sem gáfu vinninga í Bingóið. Einnig til foreldra og húsvarða í Valsheimilinu sem hjálpuðu til við uppsetningu og sjoppusölu á meðan viðburðinum stóð.
Jólakveðjur og áfram Valur