Saltkjöt og baunir túkall

Það verður sannkölluð saltkjötsveisla þann 9.febrúar næstkomandi í Valsheimilinu þegar Valsmenn hittast og gleðjast yfir saltkjöti og baunum. Dagskráin er ekki af verri endanum en hún er sem hér segir: 

  • Harmonikka : Ólafur Hjaltested
  • Söngatriði : Hrólfur Jónsson
  • Ávarp : Ásmundur Friðriksson
  • Söngatriði : Sigurður Sumarliðason
  • Matreiðsla : Lárus Loftsson & aðstoðarmenn

Húsið opnar 11:30 og verðið er 2500 krónur. Hægt er að kaupa miða með því að senda á jonas@valur.is