Fjórar Valsstúlkur í lokahóp U17

Valur á fjóra leikmenn í lokahóp U17 liðs kvenna fyrir milliriðla sem fara fram í Serbíu dagana 22.-30. mars næstkomandi. Hópurinn kemur saman 18.-20. mars til æfinga undir stjórn Freys Alexanderssonar þjálfara liðsins. 

Valsstúlkurnar í hópnum eru þær Eva María Jónsdóttir, Harpa Karen Antonsdóttir, Hlín Eiríksdóttir og Ísold Kristín Rúnarsdóttir.