Hreinn úrslitaleikur Valur - Skallagrímur

Valur og Skallagrímur leika hreinan úrslitaleik um hvort liðið fer áfram í úrslit um laust sæti í Domnio's deildinni. Staðan er 2 - 2 í einvíginu og hafa bæði lið barist fram á síðustu sekúndu í öllum leikjunum. Það má því gera ráð fyrir hörkuleik á sunnudaginn og ætla Valsmenn sér ekkert annað en sigur á heimavelli.