U17 kvenna – Lokahópur fyrir Finnland

Hlín Eiríksdóttir hefur verið valin í hóp sem er á leið til Finnlands í U-17 í UEFA móti sem haldið verður í Eerikkilä í Finnlandi dagana 5. - 10. maí.  Leikirnir fara fram undir stjórn Freys Alexanderssonar þjálfara U17 landsliðs Íslands. Knattspyrnufélagið Valur óskar Hlín til hamingju.