4 liða úrslit karla Valur-Afturelding laugardag kl.18:00

Frá kl. 15:45 verður upphitun í Valsheimilinu þar sem hægt verður að horfa á leik Hauka og ÍBV í hinni rimmunni, fá sér hamborgara af grillinu og hita sig upp fyrir stórleikinn sem hefst kl. 18:00. Í Lollastúku verða drykkjarföng fyrir fullorðna til sölu á sanngjörnu verði.

Við minnum alla iðkendur á að þeir geta boðið foreldri eða forráðamanni með sér á leikinn, bara gefa sig fram í miðasölu. Einnig minnum við á að það er frítt fyrir 16 ára og yngri.

Það er viðbúið að það verði fjölmennt á Hlíðarenda og í því sambandi minnum við á að auk bílastæða við Valshöllina er mikið af lausum stæðum hinum megin við Bústaðaveginn.

Áfram Valur, fleiri mörk!