6. flokkur kvenna Íslandsmeistarar
6. flokkur kvenna varð um helgina Íslandsmeistari í handbolta en leikið var á Húsavík þar sem lokamót vetrarins fór fram.
Stelpurnar kepptu á alls 5 mótum yfir tímabailið og voru að þeim loknum með flest stig allra liða á Íslandi.
Aldeilis frábær árangur hjá stelpunum sem hafa æft og spilað sérstaklega vel í allan vetur. Á meðfylgjandi mynd má sjá stelpurnar ásamt þjálfurum flokksins, Sigríði Unni Jónsdóttur og Stefán Pétur Gunnarsson.
Valur.is óskar stelpunum og þjálfurum flokksins til hamingju með árangurinn.