Staðan er 1-1 í einvíginu .. 3.umferð í kvöld í Valshöllinni

Það verður stál í stál í Valshöllinni í kvöld. Allt jafnt í einvíginu, þrjú rauð spjöld í síðasta leik, hvað gerist núna?

Það er grunnt á því góða milli liðanna og strákarnir elska að fá stuðning úr stúkunni. Mulningsvélin verður á staðnum í stúkunni og nú mætum við á völlinn og öskrum strákana áfram.

Minnum á hamborgarana og með því af grillinu sem hefst kl. 18:30. Það verður rosaleg umgjörð á þessum stórleik í kvöld sem þú verður að sjá. Sjáumst á Hlíðarenda.