Valur Lengjubikarmeistari kvenna
Valur varð í gær Lengjubikarmeistari B-deildar í knattspyrnu eftir 4-1 sigur á spræku FH liði. Leikið var á Valsvelli og komust gestirnir yfir á 8. mínútu leiksins með ótrúlegu marki af löngu færi.
Vesna Elísa Smiljkovic jafnaði metin fyrir Val á 73. mínútu áður en fyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir kom stelpunum yfir með marki úr vítaspyrnu á þeirri 76. Margét bætti svo þriðjamarkinu við á 82. mínútu og Vesna gulltryggði 4-1 sigur mínútu síðar.
Mynd: Þorgrímur Þráinsson