Pepsi-deild karla snýr aftur! Valur fær Fjölni í heimsókn í kvöld í fyrstu umferð, fjölmennum á völlinn!
Pepsi-deild karla hefst á ný í dag, 1.maí. Valsmenn hefja leik gegn Fjölni undir fljóðljósunum á heimavelli í kvöld kl 20, mótherarnir eru Fjölnismenn úr Grafarvogi.
Síðasta sumar var jákvætt að svo mörgu leiti, Valsarar fara í Evrópukeppni eftir frækinn bikarsigur eins og allir muna. Valsliðið spilaði afar skemmtilegan fótbolta á köflum og með mjög svipaðan leikmannahóp í sumar, því eru allar forsendur fyrir góðu sumri.
Mikilvægi stuðningsmanna og þeirra stuðnings úr stúkunni er óumdeilt. Leikmenn skila sínu á vellinum og þá er það alvöru stuðningsmanna=ALVÖRU VALSARA að mæta á völlinn og styðja liðið! Það er afar góð leið til að styrkja sitt félag að hefja kvöldið á að fá sér mat beint af FÁLKAgrillinu, setjast svo í stúkuna og hvetja leikmenn til dáða.
Leikmenn eru tilbúnir í átökin, en eru stuðningsmenn tilbúnir!
Pepsi-deild karla
1.umferð
Valur - Fjölnir
Valsvöllurinn
Sunnudagskvöld kl. 20