Valur - Fjölnir 1 - 2. Fall er fararheill
VALUR - FJÖLNIR 1 - 2 (0- 1)
Íslandsmótið í knattspyrnu, Pepsi-deild karla, 1. umferð. Valsvöllurinn að Hlíðarenda, sunnurdaginn 1. maí 2016, kl. 20:00
Aðstæður: Góðar, hitastig 5°c, léttur andvari af norð-vestan, 2-3 m/sek. Áhorfendur: 1220
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson. Aðstoðardómarar: Birkir Sigurðsson og Smári Stefánsson.
Fall er faraheill er stundum sagt ef eitthvað fer úrskeiðis í upphafi. Það má kannski segja að Valsmenn hafi hrasað í fyrstu umferð Íslandsmótsins í ár, því vissulega ætluðu menn sér sigur í þessum leik. Það ríkti bjartsýni meðal stuðningsmanna Vals í stúkunni. Bæði gaf sætur sigur gegn Íslandsmeisturum FH í Meistarakeppni KSÍ í byrjun vikunnar góðar vonir og einnig sú staðreynd að Valsliðið er ágætlega skipað öflugum knattspyrnumönnum um þessar mundir.
Endurkoma Guðjóns Péturs Lýðssonar og innkoma þriggja nýrra framherja, hins efnilega Björgvins Stefánssonar, markakóngs 1. deildar frá síðasta sumri og Dananna Rolfs Tofts og Nikolajs Pedersens að ógleymdum hinum hæfileikaríka U-21 landsliðsmanni, miðjumanninum Sindra Björnssyni, hefur vissulega bólstrað vel okkar sterka hóp. En knattspyrnan er óútreiknanleg og gengur oft þvert á allar væntingar. Við vitum að leik er aldrei lokið fyrr en lokaflautið gellur.
Ólafur stillti upp sínu liði með Ingvar Kale í markinu, þá Bjarna Ólaf og Andra Fannar í bakvarðastöðunum og Orra og Rasmus Christiansen í miðvörninni. Aftastur á miðjunni var Haukur Páll fyrirliði og fyrir framan hann þeir Guðjón Pétur og Kristinn Freyr. Daði Bergsson og Sigurður Láruson lágu út a köntunum og Rolf Toft var í fremstu víglínu.
Valsmenn byrjuðu leikinn betur og strax á 5. mínútu gaf Sigurður Lárusson, eftir hraða sókn, góðan bolta inn í teiginn frá vinstri en Valsmenn náðu ekki að nýta sér færið. Skömmu seinna átti Bjarni Ólafur hörkugóða sendingu inn í teiginn á Rolf Toft en skalli hans fór hátt í loft upp. Smám saman komust Fjölnismenn inn í leikinn og voru það einkum framherjarnir Þórir Guðjónsson (fyrrum Valsmaður) og Martin Lund Pedersen sem þurfti að hafa gætur á.
Liðin skiptust á að sækja um miðbik hálfleiksins en það var sammerkt með báðum liðum að þeim gekk ekki vel að halda boltanum innan liðsins á þessum kafla né að nýta þau færi sem gáfust. Valsmenn fengu dauðafæri þegar Sigurður vann boltann af varnarmanni Fjölnis og gaf inn í teiginn á Rolf Toft ,dauðfrían, sem skaut yfir markið úr góðu færi. Annað færi skapaðist þegar Guðjón Pétur komst á auðan sjó við vítateig Fjölnismanna en náði ekki að fóta sig almennilega og þar gott tækifæri rann út í sandinn.
Á 35. mínútu voru Valsmenn nálægt því að taka forystuna. Rolf Toft komst upp hægra megin og gaf fastan bolta fyrir markið, Sigurður Lárusson kom aðvífandi og náði föstu skoti sem fór í utanverða stöngina. Í næstu ókn skouðu Fjölnismenn. Martin Lund Pedersen komst í gegn vinstra megin, einn gegn Ingvari markverði sem felldi hann, utarlega í teignum. Dómarinn benti umsvifalaust á vítapunktinn og Þórir Guðjónsson skoraði af miklu öryggi, 0 - 1. Valsmenn náðu ekki að svara fyrir sig og gengu til leikhlés marki undir.
Valsmenn hófu seinni hálfleikinn af miklum krafti og uppskáru nokkrar hornspyrnur en ekki náðu þeir að nýta sér þær, einna næst komst góður skalli Bjarna Ólafs upp úr einu horninu. Eftir klukkutíma leik í senni hálfleik kom Kristinn Ingi Halldórsson inn á fyrir Daða Bergssson og skömmu seinna fékk Sigurður Lárusson upplagt færi þegar hann komst einn gegn markverði Fjölnis; en Þórður markvörður sá við honum og náði að verja.
Fjölnismenn voru ákveðnir vörðust vel, sérstaklega var miðvörnin sterk með Danann Tobia Nielsen sem besta mann. Valsmenn gerðu skiptingu á 68. mínútu, þegar Björgvin Stefánsson kom inn á í sínum fyrsta leik fyrsta leik í Valsbúningnum. Strax í kjölfar skiptingarinnar skora Fjölnismenn sitt annað mark. Var þar að verki Þórir Guðjónsson, með sitt annað mark í leiknum, upp úr þvögu sem myndast hafði í vítateig Valsmanna, 0 - 2.
Valsmenn voru sannarlega ekki á þeim buxunum að gefast upp og reyndu hvað þeir gátu að rétta hlut sinn. Það bar loksins árangur á 80. mínútu. Boltinn barst til Guðjóns Péturs Lýðssonar sem var óvaldaður utan vítateigs Fjölnismanna. Hann skaut föstu, hnitmiðuðu skoti í vinstra hornið, Þórður markvörður átti litla möguleika á að verja. Frábært mark, 1 - 2. Valsmenn gerðu harða hríð í lokin en tókst ekki að brjóta á bak aftur varnarleik Fjölnis og uðru að lokum að bíta í það súra epli að játa sig sigraða í þessum fyrsta leik Íslandsmótsins.
Þrátt fyrir tap í þessum fyrsta leik voru ýmsir góðir hlutir í gangi og lengst af var Valsliðið sókndjarfara. Seinni hálfleikurinnn var mun betri hjá okkar mönnum en sá fyrri. Í fyrri hálfleik vantaði aðeins upp á ákefðina og of margar sendingar fóru forgörðum. Seinni hálfleikurinn var mun betri þó ekki næðist að nýta þau færi sem gáfust en þannig er nú einu sinni fótboltinn, stundum falla hlutirnir ekki með liðinu og getur þá orðið skammt á milli feigs og ófeigs hvað úrslitin varðar.
En Valsmenn þurfa ekki að örvænta. Við erum með góðan hóp sem hefur alla burði til að blanda sér í toppbaráttuna í sumar. Ólafur og Sigurbjörn munu eflaust ná því besta út úr liðinu þegar á líður. Næsti leikur er gegn Víkingum í Ólafsvík um næstu helgi. Víkingarnir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Breiðablik að velli í fyrstu umferð svo það má ekki vanmeta nýliðana. Það munu allir leggjast á árarnar í Ólafsvík um næstu helgi og freista þess að ná öllum þremur stigunum sem í boði verða. ÁFRAM VALUR!