Valur og KR mætast í Pepsideild kvenna

Valur og KR mætast í kvöld í annarri umferð Pepsideildar kvenna í fótbolta á Valsvellinum að Hlíðarenda klukkan 19:15. 

Valsstúlkur gerðu jafntefli í fyrstu umferð gegn spræku liði Fylkis á meðan KR mátti þola 4-1 tap gegn Breiðablik.

Leikurinn hefst sem fyrr segir klukkan 19:15 og hvetur Valur.is stuðningsmenn nær og fjær til að fjölmenna.