Gylfi Sigurðsson kíkir í heimsókn í dag fimmtudag

Í dag á milli kl. 15;45 og 16:30 verður landsliðsmaðurinn Gylfi Sigurðsson í heimsókn að Hlíðarenda og mun heilsa upp á iðkendur.

Ef allt gengur upp hjá Aroni Gunnarssyni fyrirliða mun hann kíkja í heimsókn um 16;30.

Endilega fjölmennið og heilsið upp á kappana.

Þann 2. júní kl. 17:30 munum við Valsmenn hins vegar kveðja Valsmennina í landsliðinu, Ara Frey, Birki Má, Rúnar Má og vonandi Eið Smára. Þeir munu gefa eiginhandaráritanir og spjalla við yngri iðkendur - Nánar auglýst síðar.