Valur heimsækir KR á morgun sunnudag

Valur heimsækir KR-inga í 6. umferð Pepsi deildar karla á morgun sunnudaginn 29. maí. 

Hlíðarendapiltar koma fullir sjálfstraust eftir góðan sigur gegn Fjölni í vikunni á meðan KR mátti þola tap gegn 1. deildar liði Selfyssinga. 

Það má því búast við hörkuleik eins og vanalega á milli þessara liða þegar Þorvaldur Árnason dómari flautar til leiks klukkan 20:00

Áfram Valur og allir á völlinn