Valsmenn í yngrilandsliðum - Handbolti U18 og U20
Einar Guðmundsson og Kristján Arason þjálfarar u-18 ára landsliðs karla hafa valið 16 manna hóp sem tekur þátt í æfingarmóti í Lubeck í Þýskalandi dagana 30. júní til 3. júlí og fara á lokamót EM sem fram fer í Króatíu 10. til 22. ágúst.
Ísland er þar í riðli með Króatíu, Svíþjóð og Tékklandi og kemur hópurinn kemur saman til æfinga föstudaginn 24. júní.
Í hópnum er Valsarinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson vinstri skytta en þeir Alexander Másson og Markús Björnsson eru til vara að þessu sinni.
Þá völdu þeir Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal þjálfarar u-20 ára landsliðs karla 20 manna hóp til æfinga fyrir EM sem fram fer í Danmörki í júlí og ágúst.
Ísland er þar í riðli með Rússlandi, Slóveníu og Spáni en fyrsta æfing liðsins er miðvikudaginn 15. júní kl.6.45 í Kaplakrika.
Liðið mun æfa til 23. júní nk. en þá fer liðið til Sviss í æfingarmót. Í hópnum eru þrír Valsarar, þeir Ómar Ingi Magnússon, Sturla Magnússon og Ýmir Örn Gíslason.
Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis með landsliðunum.