Fyrirlestur - Hlutverk markmannsins

Björgvin Páll Gústavsson markvörður A landsliðs karla verður með fyrirlestur í E-sal (fundarsalir ÍSÍ) á fimmtudaginn kl.17.00.

Þar mun Björgvin fara yfir þær nýjungar sem komið hafa inn á síðustu árum og hvernig staða og hlutverk markmannsins er að breytast.

Fyrirlesturinn er í léttari kantinum og mikið lagt uppúr umræðum á eftir. Efnið er miðað að þjálfurum og markvörðum en að sjálfsögðu eru allir velkomnir.

Frétt af heimasíðu HSÍ