Valsstúlkur mæta Selfyssingum í kvöld

Valsstúlkur taka á móti stöllum sínum frá Selfossi í dag þegar liðin mætast í 8. umferð pepsi deildar kvenna klukkan 19:15 að Hlíðarenda. 

Þegar liðin mættust í bikarnum fyrir rúmum mánuði síðan höfðu Selfyssingar betur með þremur mörkum gegn tveimur og hafa Valsstúlkur því harm að hefna í kvöld. 

Leikurinn hefst sem fyrr segir klukkan 19:15 og munu Fálkarnir grilla sólríka eðalborgara og pylsur fyrir vallargesti gegn vægu gjaldi. 

Mætum á völlinn og styðjum stelpurnar til sigurs.