3.fl.kvk á USA CUP

Það var glatt yfir stúlkunum í 3.flokki kvenna í knattspyrnu á dögunum þegar þær lögðu af stað til Minneapolis í Bandaríkjunum til að keppa á USA Cup mótinu. Ætlunin er að dvelja þar í viku  og er mótið eitt stærsta knattspyrnumót heims með yfir 950 lið frá Bandaríkjunum og 16 öðrum löndum.

Stúlkurnar eru 17 talsins og með þeim eru tveir fararstjórar, foreldrar og þjálfari. Hægt er að fylgjast með leikjum á gamecast hér http://www.usacup.org/page/show/1551535-gamecast-tv

Keppnin stendur yfir frá 19. til 23. júlí