Valsarar mæta Víkingi frá Ólafsvík á morgun miðvikudag

Valsarar mæta Víkingum frá Ólafsvík á morgun miðvikudag í 13. umferð Pepsi deildar karla klukkan 20:00 að Hlíðarenda. 

Gestirnir eru í sjöunda sæti deildarinnar með 18 stig en Valsmenn í því áttunda með fimmtán og geta því jafnað Víkinga að stigum með sigri. 

Leikurinn hefst sem fyrr segir klukkan 20:00 og hvetjum við Valsara til að fjölmenna á völlinn.

 

Smelltu hér til að tryggja þér miða í forsölu á 1500 krónur.