Handboltaskóli Vals byrjar á mánudaginn

Vekjum athygli á handboltaskóla Vals fyrir stráka og stelpur á aldrinum 6-12 ára og 13-18 ára sem fer af stað eftir helgi, mánudaginn 8. ágúst.

Um er að ræða tvö námskeið vikurnar 8-12. ágúst og 15-19. ágúst. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingum.

Strákar og stelpur á aldrinum 6-12

  • Frá kl. 9-12 mánudag - föstudags
  • Taka með sér hollt og gott nesti
  • Gæsla milli 8 og 9 í gamla sal

Árgangur 2001-2003

  • Frá kl. 12:15-13:30 mánudag - föstudags

Árgangur 1998-2000

  • Frá kl. 13:30-14:45 mánudag - föstudags

 

Skráning í fullum gangi inn á valur.felog.is/ og er öllum opin - Einnig hægt að skrá sig við mætingu. 

Byrjum handboltatímabilið með stæl að Hlíðarenda undir leiðsögn frábærra þjálfara og leiðbeinenda.