Valsmenn sækja Fylkismenn heim kl. 19:15

Það er skammt stórra högga á milli í Pepsi-deild karla þessa dagana en Valsmenn mæta Fylkismönnum í 14. umferð deildarinnar á Floridana-vellinum klukkan 19:15 í kvöld.

Lærisveinar Ólafs Jóhannessonar leitast eftir að fylgja eftir góðum sigri gegn Víkingi Ólafsvík í síðustu umferð þar sem liðið fór með öruggan 3-1 sigur. 

Fyrri leik liðanna í sumar á Valsvelli lauk með 2-0 sigri Vals þar sem Guðjón Pétur Lýðsson og Haukur Páll Sigurðsson skoruðu mörk Vals. 

Fylkismenn berjast á botni deildarinnar og munu án efa leggja allt í sölurnar í kvöld og því má búast við hörku leik auk þess sem okkar menn freista þess að næla í fyrsta útisigur sumarsins. 

Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna í Árbæinn og styðja strákana til sigurs - Áfram Valur!