Úrslitaleikur Borgunarbikarsins, Valur - ÍBV

Miðasala á úrslitaleik Vals og ÍBV í Borgunarbikar karla er í fullum gangi inn á midi.is en flautað verður til leiks næstkomandi laugardag, þann 13. ágúst klukkan 16:00.

Öll miðasala fer fram í gegnum midi.is og hægt er að smella hér til að tryggja sér miða á leikinn.

Bikarhátíð að Hlíðarenda

Blásið verður til bikarhátíðar að Hlíðarenda klukkan 13:30 á leikdegi þar sem öll fjölskyldan getur mætt, fengið sér hressingu, keypt varning og farið í andlitsmálningu fyrir leikinn.

Dagskrá:

13:30: Andlitsmálning fyrir börn og fullorðna

14:00: Pizzuveisla

15:00: Rútur frá Hlíðarenda að Laugardalsvelli

16:00: Kick off | Valur - ÍBV

Hvetjum stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs - Höldum bikarnum að Hlíðarenda.