Handboltaskóli Vals - Skráning á námskeið 2 í fullum gangi

Um leið og við þökkum fyrir frábæra mætingu í handboltaskóla Vals þessa vikuna viljum vekja athygli á að námskeið nr. 2 hefst eftir helgi.

Námskeið 2 vikuna 15. - 19. Ágúst

Stelpur og strákar á aldrinum 6-12 ára:

  • Frá kl. 9-12 mánudag - föstudags
  • Taka með sér hollt og gott nesti
  • Gæsla milli 8 og 9 í gamla sal
  • Iðkendur fæddir 2004 valið hvort þeir eru í hópnum fyrir eða eftir hádegi
  • Verð 7.500

Árgangur 1998-2004

  • Frá kl. 12:15-13:30 mánudag - föstudags
  • Iðkendur fæddir 2004 valið hvort þeir eru í hópnum fyrir eða eftir hádegi  
  • Verð 7.500

Skráning í fullum gangi inn á valur.felog.is/ og er öllum opin - Einnig hægt að skrá sig við mætingu. 

Byrjum handboltatímabilið með stæl að Hlíðarenda undir leiðsögn frábærra þjálfara og leiðbeinenda.