VALUR BIKARMEISTARAR 2016

Valsmenn eru Borgunarbikarmeistarar karla eftir að leggja ÍBV að velli í úrslitaleiknum sem fram fór á Laugardalsvelli í dag. Sigurður Helgi Lárusson var hetja Valsmanna en hann skoraði bæði mörk liðsins í leiknum.

Fyrra mark Sigurðar kom á 8. mínútu leiksins er hann komst einn í gegn og sólaði sig framhjá markmanni ÍBV. Seinna mark leiksins kom á 20. mínútu en fleiri mörk litu ekki dagsins ljós og Valsmenn unnu því 2-0 sigur og verja bikarmeistaratitilinn en þeir unnu hann líka á seinasta ári er þeir lögðu KR í í úrslitaleiknum.

Til hamingju Valsarar!