Valsarar sækja Þróttara heim í kvöld

Valur sækir Þrótt Reykjavík heim í kvöld þegar liðin mætast í 16. umferð Pepsi-deildar karla.

Valsarar freista þess að fylgja eftir frábærum sigri á Víking R. þar sem liðið fór hreinlega á kostum og sigraði 7-0. Þróttarar berjast á hinn bóginn fyrir lífi sínu í deildinni og munu án efa leggja allt í sölurnar. 

Leikurinn hefst klukkan 20:00 á Þróttarvelli og hvetjum við Valsara nær og fjær til að fjölmenna á völlinn.